Forsíða
61.120 greinar á íslensku.
Írena frá Aþenu
Írena frá Aþenu var austrómversk keisaraynja. Hún var gift Leó 4., sem var keisari frá 775 til dauðadags árið 780. Eftir dauða Leós var Írena ríkisstjóri austrómverska keisaradæmisins frá 780 til 790 á meðan sonur hennar, Konstantínus 6., var ómyndugur. Þegar Konstantínus lést árið 797 varð Írena sjálf ríkjandi keisaraynja frá 797 til 802.
Írena keisaraynja var fyrsta konan sem fór formlega með völd í austrómverska keisaradæminu. Hún átti meðal annars frumkvæði að því að kalla saman annað Níkeuþingið og fyrir því að stöðva helgimyndabrot tímabundið. Hún var einnig þekkt fyrir rausnarlega efnahagsstefnu sína og fyrir að vera sérlega vinsamleg gagnvart klaustrum. Hún naut ekki eins mikillar virðingar í Vestur-Evrópu. Bæði Leó 3. páfi og Karlamagnús Frankakeisari töldu það viðurstyggð að kona færi með pólitísk völd og neituðu báðir að viðurkenna vald hennar sem keisaraynju Býsansríkisins.
Vissir þú...

- … að Ferdinand 1. Búlgaríukeisari var fyrsti þjóðhöfðinginn sem flaug um borð í flugvél?
- … að flestir fræðimenn telja að tala dýrsins, 666, í Opinberunarbók Jóhannesar, vísi til Nerós Rómarkeisara?
- … að Joseph Merrick, öðru nafni fílamaðurinn (sjá mynd), fékkst við að smíða vönduð smálíkön af byggingum úr pappa?
- … að talið er að yfir 800.000 Indverjar hafi látið lífið í hefndaraðgerðum Breta gegn uppreisninni á Indlandi árið 1857?
- … að kirkjan á Íslandi heyrði undir Erkibiskupsdæmið í Bremen frá stofnun fram til 1104 þegar erkibiskupsdæmið í Lundi var stofnað fyrir kirkjur Norðurlanda?
Fréttir

- 29. júní: Keiko Fujimori (sjá mynd) vinnur forsetakosningar í Perú.
- 26. júní: Að minnsta kosti 1.400 manns farast eftir jarðskjálfta í Venesúela.
- 22. júní: Keir Starmer segir af sér sem forsætisráðherra Bretlands.
- 14. júní: Bandaríkin og Íran gera samkomulag til að binda enda á Íransstríðið.
- 12. júní: Elon Musk verður fyrsti billjónamæringur sögunnar (í bandaríkjadölum) eftir að opnað er fyrir viðskipti með fyrirtæki hans, SpaceX, á NASDAQ-hlutabréfamarkaðnum.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Megas (6. júlí) • Margrét Helga Jóhannsdóttir (17. júní)
7. júlí
- 2001 - Uppþotin í Bradford hófust eftir að félagar í National Front stungu mann af asískum uppruna utan við krá í Bradford.
- 2004 - Síðasta einkaleyfið á Lempel-Ziv-Welch-samþjöppunaralgríminu rann út.
- 2005 - Hryðjuverkin 7. júlí 2005: Fjórar sjálfsmorðssprengjuárásir urðu 56 manns að bana í London.
- 2007 - Heimsmet var slegið í vatnsbyssuslag á Landsmóti UMFÍ í Kópavogi. Fyrir þessu stóðu SPK og útvarpsstöðin FM957.
- 2007 - Live Earth-tónleikar voru haldnir í 9 borgum um allan heim til að vekja athygli á umhverfismálum.
- 2007 - Svissneska félagið New Open World Corporation kynnti „Sjö nýju undur veraldar“: Kínamúrinn, Petru í Jórdan, Cristo Redentor í Brasilíu, Machu Picchu, Chichen Itza, Colosseum í Róm og Taj Mahal á Indlandi.
- 2008 - Fundur átta helstu iðnríkja heims hófst á Hokkaídó í Japan.
- 2012 - Fyrstu frjálsu þingkosningarnar í Líbýu áttu sér stað.
- 2017 - Samningur um bann við kjarnavopnum var samþykktur af 122 ríkjum.
- 2021 - Jovenel Moïse, forseti Haítí, var myrtur á heimili sínu.
Systurverkefni
|
|